Saturday, February 28, 2009

My fótur is stuck. Fix it please.

Kom blek. Ég var liggur við búin að smella upp tilkynningu hérna þar sem ég ætlaði að vitna mjög kurteislega í Nostradamus Nýrrar Danskrar: Hverf inn í sjálfan mig og kveð ykkur að sinni. En svo fékk ég símtal í gærkvöldi sem breytti lífi mínu. Eða svona fast að því. Þannig að hér kemur eitt stykki blögg ásamt loforði um að nú verði þau minnst 4 í mánuði, 1 í viku, 2 hálfsmánaðarlega. Vil ég þakka Greifanum fyrir gott spjall í gærkvöldi. Alltaf ánægjulegt með eindæmum.

Nema hvað. Síðan síðast hefur eitt og annað mismerkilegt drifið á daga druslunnar Jones. Ég gerist djörf og bregð undir mig stykkorðafætinum. Gjöriði svo vel.

- Stokkhólmur tekinn með trompi í þrjá daga í byrjun febrúar. E og Jones fóru ódýru en jafnframt góðu leiðina og deildu hostelherbergi með þremur ljótum, en mjóum, þýskum stelpum. Þær voru ekki að eyða neinum tíma í vitleysu og fóru á maðsíft fyllerí á föstudagskvöldinu og púlluðu allar enska gaura sem þær svo að sjálfsögðu komu með aftur inn á herbergið og náðu að klöngra þeim upp í efri kojurnar sínar. Kossar og káf og mjög náin samtöl fóru fram á tveimur þeim allra ljótustu tungumálum sem ég veit um – þýsku og London ensku. Mér var skapi næst að spretta fram úr neðri kojunni, klifra upp og æla framan í þau. Og ef einhver ætlaði að fara eitthvað að myndast við að machen sie lieben í kojunum þá hefði ég skrautskrifað með hnefunum í smettið á þeim. Sem betur fer kom ekki til þess.

- Nema hvað. Til að drýgja tekjurnar, sem eru ekki svimandi háar þessa dagana, þá mun yfirrituð taka sig til og ljá dvd kennslumyndbandi í íslensku krafta sína ásamt Benna nokkrum Hemm Hemm sem einnig er búsettur í Eddanum. 10 pund á tímann. Ég hef selt...annað fyrir minna en það.

- Ekki nóg með það heldur eru Jones og E önnum kafin við að undirbúa ljósmyndasýningu sem þau koma til með að smella upp 29. maí – 1. júlí 2009. Ef það er ekki tilefni til að vinda sér til Edinborgar og berja herlegheitin augum þá veit ég ekki hvað. Hah.

- Er að spá í að selja fullt af fötunum mínum á eBay. Eða bara hérna kannski. Því það er nefnilega kreppa. Og mig langar samt í ný föt. Hmmm. Tricky. Very tricky.

- Hef heyrt svo marga forsætisráðherra-lesbíu brandara undanfarið að ég hef bara ekki tölu á þeim. Ég hef svona rennilás á þeim í staðinn.

- Í tilefni af Happy Fucking Tuesday sem er sérlegur gleðidagur Jones og Jen, samstarfskonu minnar, áttum við heilan gleðidag í borginni um daginn. Happy Fucking Tuesday bar að þessu sinni upp á þriðjudegi og var deginum eytt við hina margvíslegustu iðju sem flestöll innihélt þó eitthvert glens í vökvaformi. Reimuðum dansskó við fót um kvöldið og á leiðinni heim festi ég skóinn minn í bráðskemmtilegu rimladimsi sem er ofan á ræsunum. Þetta var flókin staða enda var ég með stóran bing af chips&cheese í báðum höndum á þessum tímapunkti. Ég fékk mér þess vegna sæti á gangstéttarbrúninni, ennþá með löppina fasta og kláraði að borða. Svo kom löggan og ætlaði að fara að keyra mig heim og eitthvað vesen. Þeir hjálpuðu mér hins vegar bara að losa löppina svo það reddaðist allt saman. Jen lá hins vegar eftir óvíg af hlátri á meðan á þessu öllu stóð þannig að ég hugsa mig um tvisvar áður en ég lendi í háska aftur með henni á djamminu.



Og bles.