Monday, May 25, 2009

Shake shake shake, cake cake cake

Photobucket
Nákvæmlega svona vil ég að mín verði minnst þegar sá tími kemur að ég tölti yfir móðuna miklu. Um daginn bakaði ég svo kleinur í fyrsta skipti á ævinni. Það var ánægjulegt og heppnaðist með eindæmum vel. Pabbi sendi mér meira að segja spes sms til að óska mér til hamingju með að enginn hefði slasast, andlega eða líkamlega, í kleinusteikingarfrensíinu mikla á Cathcart Place. Um kvöldið datt ég svo dulítið íða og söng Fleet Foxes á leiðinni heim áður en ég tróð flatböku í andlitið á mér. Ég vil hér með leggja fram þá tillögu að Valþór Ásgrímsson flytji frá Ljótuborg og hreiðri um sig meðal morða og bófa hér í Edinborg. Miklu skemmtilegra að hafa hann hérna heldur en í Glasgow. Við gerðum meðal annars mjög vísindalega úttekt á hvort stúlkur væru með brauðmaga/óléttubumbu. Það var svona um það bil 90/10.

Í um það bil því allra mesta úrhelli á Bretlandseyjum í manna minnum...(eða allavega síðustu tvær vikurnar), ákváðum við E að fara í Ikea að kaupa ramma fyrir sýninguna (sem opnar eftir 5 daga). Ikea er staðsett einhvers staðar út í fjenden, skammt frá Líkbrennslu Edinborgar og Niddry sem myndi seint teljast til þess hverfis þar sem góðborgarar kjósa að búa sér heimili. En þetta heppnaðist allt saman. Við vorum ekki drepin á leiðinni en vorum hins vegar ansi köld og hrakin þegar við komum heim með 17 ramma. Og eina mottu.

*jeij*



Og bles.

3 vita betur:

Valþór said...

þetta er svoooo fín mynd. flyt á morgun.

Signy said...

Ég styð flutning

Geir said...

á ekkert að fara blogga?
Annars finnst mér þessi mynd eigi að vera á öllum bettí krokker boxum. Ég vildi að þú værir amma mín.