Góðir lesendur,
Eins og þið hafið vonandi tekið eftir í samlesnum auglýsingum Rásar 1 og 2 í liðinni viku þá er yfirrituð nú komin í sambúð. Geri ég mér fyllilega ljóst að tilkynning þessi kemur til með að kremja mörg karlmannshjörtun, ekki ósvipað þeirri gífurlegu angist sem skók gjörvalla Evrópu þegar Take That tilkynntu að þeir hefðu ákveðið að hætta samstarfi. Anyways, Cathcart Place og gjörvallt Dalry/Gorgie svæðið hefur hins vegar haldið vikulanga fagnaðarhátíð, með bumbuslætti og magadansi (einnig þekkt sem bumbuskak), okkur til heiðurs sem er ósköp sætt af þeim. Íbúðin er afskaplega skemmtileg og það verður að segjast að ég er aukreitis ákaflega lukkuleg með sambýlismann minn elskulegan. Enn sem komið er hef ég sett reykskynjarann í gang tvisvar sinnum, annars vegar þegar ég var að rista brauð og hins vegar þegar ég var að baka pönnukökur. Önnur stóráföll hafa verið minniháttar, ef frá eru taldar svokallaðar 'Eldhúsdagsumræður' þar sem fram fór heiftarlegt orðaskak um hvort ísskápurinn á nýja heimilinu kæmi til með að hýsa undanrennu eða nýmjólk. Jones vann. Og er það vel.
Milli þess sem ég sörvera kaffi af alkunnum þýðlegheitum í vinnunni, dedúera ég bara brjóstahaldaralaus hér heima með rúllur í hári, filterslausan camel í annarri og buckfest flösku í hinni. Dujók. Sótti um aðra vinnu um daginn og er jafnframt að íhuga hvort doktorsnám sé eitthvað sem vert væri að huga að. Ljósmyndasýningin fer upp eftir 10 daga og við eigum ennþá töluvert eftir en ekkert sem reddast ekki 10 mínútum fyrir opnun.
Sátt.
Og bles.
Tuesday, May 19, 2009
Subscribe to:
Post Comments (Atom)


2 vita betur:
ég veit ekki hvort ég lifi þetta af
*kremj*
Post a Comment