Sunday, May 10, 2009

Au revoir Vesturport

Jæja. Nú er svo komið að Jones situr við tölvuna og horfir út á West Port út um gluggann sinn. Fyrir utan er nánast stöðugur straumur af fólki. Túristar, kellingahópar í gæsunarferð, gaurar með rakað hár klæddir í íþróttabuxur, reykjandi og um leið sjúgandi í sig óheyrilegt attitude. Og gott ef ein vændiskona trítlaði ekki framhjá nú rétt í þessu. Á morgun fáum við lyklana að nýju íbúðinni sem ber hið þjála nafn – Cathcart Place. Loksins náði ég að finna litla týnda sál til að taka við leigunni á herberginu mínu. Hún er frönsk og afar mikil frekja. Það mætti jafnvel ganga svo langt að segja að franskar konur fitni kannski ekki en þær eru sjúklega leiðinlegar. En svo lengi sem hún tekur herbergið mitt er mér sama. Ekki er ég að fara að búa með henni nefnilega.

Mér finnst ég vera búin að flytja alltof oft síðastliðin 10 ár. Það er eiginlega tæplega að ég nenni að telja það saman en það er gaman að segja frá því að ég hef aldrei búið lengur en ár á hverjum stað undanfarinn áratug. Tvö merki um að ég sé að verða gömul: ég verð alltaf geypilega þunn og mig er farið að langa að eiga “heima” einhversstaðar. Og væntanlega ekkert að því svosem. Svo lengi sem maður fer ekki að spýta út úr sér börnum og missa allt fler og langa til að gifta sig. Nokkuð sem er ei á dagskrá næstu...40 árin. Tók smá lagningu eftir vinnu í gær og vaknaði gríðarlega ómöguleg. Kalt, í gallabuxum (ekki gott að sofna í skinny jeans) og með heimþrá. Ég held ég þurfi að splæsa í yfirdrátt og koma í heimsókn í sumar. Þetta er ekki bara spurning um löngun heldur þörf. Hvenær eru Írskir þetta árið...?

Fyrir utan það að mér finnst ógeðslega leiðinlegt að pakka niður og ég er með krónískan brjóstsviða yfir þessari ljósmyndasýningu, er lífið afar ljúft. Signý vitleysingur kíkti í heimsókn í síðustu viku og Vallinn mætti á svæðið frá Glasvegas. Mikið gaman. Mikið grín. Ég elska hvernig sumt breytist bara aldrei.

Sóla: Eoin ætlaði svo að koma og hitta okkur seinna á...
Signý: Bíddu, hver er það??
Sóla: Signý...
Signý: Jaaaaaaááá *Hahahahahaha* Ég var að hugsa Owen. Sko skrifað þannig. Eða þú skilur. *Ahahahaha*

:)

Internetlaust fyrstu vikuna í nýja pleisinu. Ekki það að það komi til með að hafa áhrif á mín...mánaðarlegu bloggskrif. En bara svona svo þið vitið af því. Alltílæitakkogbless!



Og bles.

3 vita betur:

Signy said...

Heeeeeei!! bara smááá misingur, ég meina misskilningur. Ég skrifa sko allt upp í huganum sem ég heyri (inní mér heyrist bara pikk pikk pikk pikk pikk... endalaust)
; )) kjiss kjiss

Anonymous said...

er ekki örugglega dýna í nýja pleisinu? :P hahahaha

Æææææm kánting...dán :D

jones said...

Signý: *pikk pikk pikk* :)
kjussi kjuss steikin þín :)

Bó: Ekki bara dýna, heldur GESTASÓFI! So keep counting ;) *mmmmwah*