Ég ætla ekki einu sinni að byrja að tala um kosningar, pólitík, biturleika, vinstri, hægri, kynhneigð þingmanna eða fyllerí. Djöfull agalega er ég með mikið ofnæmi fyrir þessu. Það gerir mig leiða að hugsa til þess að vort fagra föðurland er litlu skárra en Zimbabwe og það sem gerir mig ennþá sorgmæddari er að pólitískt minni íslensku þjóðarinnar er minna en that of a goldfish. Það gildir einu við hvaða bókstaf fólk kennir sig. Það vellur sami niðurgangurinn upp úr og niður úr þessu fólki og öll sannfæring og loforð eru svo á bak og burt um leið og það eygir ráðherrastól. Nenni þessu ekki.
En tölum um mig. Það er skemmtilegra. Tölum um það að meðleigjandi minn hefur fengið fleiri gesti til sín í þessari viku. Þeir drukku bjórinn minn, menguðu íbúðina af strákalykt (pizzu/táfýlu lykt) og hafa ekki vaskað upp eitt einasta snitti síðustu 6 dagana sem þeir hafa búið hér, forcing me til að drekka morgunkaffið mitt af djúpum disk. Dettur ekki í hug að fara að vaska upp eftir þá. Eftir 12 tíma vinnudag Jones á föstudaginn mættu þeir svo, aðfaranótt laugardags, af djamminu lavandi mikil ballade og verandi óþolandi. En í næstu viku mun dæmið snúast við því. Þá verður minn tími kominn. Cara mia Signý Gunnarsdóttir hefur ákveðið að leggja land undir fót frá Mílanó og kynna sér alvöru hátísku hér á götum Skotlands. Joggíngbuxur, bert á milli og Argos gull er að koma sterkt inn þetta seasonið. Djöfull hlakka ég til :)
Þessu skylt, og þó, tilkynnist það hér með að lagt verður út í samba dulítið fyrr en áætlað var þar sem E fann íbúðina einu um daginn. Eftir töluverð fjárútlát í formi admin fee og deposit varð það úr að þann 12. maí fáum við íbúð á Cathcart Place afhenta. Afar spennandi. Þess á milli erum við svo að undirbúa þessa blessuðu ljósmyndasýningu sem fer upp 29.maí og er að valda mér dulítilli stress-skitu. En þetta reddast. Svo lengi sem ég þarf ekki að heyra dönsku og finna prumpufýlu er ég ánægð.
Valþór minn kær kíkti í heimsókn í gær. Við tókum það ógurlega rólega, keyptum okkur kaffi og með því og tylltum okkur á bekk í Princes Garden. Þar sem ég lét fara vel um mig í sólskininu, þakkaði í hljóði fyrir að búa í Edinborg og eiga góða vini, skeit dúfa á hausinn á mér. Sem betur fer var þetta ekki svifskita heldur lendi slumman á afmörkuðu svæði, dulítið norðan við hvirfilinn á mér. Þetta á víst að boða lukku. Sú lukka má gjarnan senda sig í formi ágætlega stórrar peningasummu, takk takk.
Á frídögum stel ég gjarnan myndavélinni hans E og tek myndir af ókunnugu fólki. Afraksturinn má sjá á litlu sideprojecti Jones - Cheer Up Fox
Og bles.
Sunday, April 26, 2009
Subscribe to:
Post Comments (Atom)


8 vita betur:
tak for sidst! ó, er ég að drepa þig úr dönsku? bara payback fyrir að reyna að drepa mig úr hlátri með dúfnakúk í hári. og maskaralínu.
Sóla mín! við hökkum þessa dani í okkur, I'll just put on my psycho charm og þeir enda á að þrífa íbúðina hátt og lágt ; ) Hlakka geðveikt til að koma og knúsa þig og kreista ; ))
úú ný íbúð, án anders bo pedersen!;) speeeennandi;)
úú ný íbúð, án anders bo pedersen!;) speeeennandi;)
Flottar myndir :)
Er myndin líka eftir þig sem er efst á síðunni af hundinum?
Kveðja,
Sigrún Margret
Ó mæ ó mæ, sambi OG ljósmyndasýning... det bli'r BALLADE !!! :D
Neh, djók. Ég skal reyna að stilla dönskunni í hóf... en bara gott hóf !
Bó :D
Til hamingju með sambann :)
Mjög flottar myndir, sérstaklega þessi af susan boyle jr. í fatabúðinni. Eitthvað svona órætt flott í þessari mynd...
Það eru greinilega engin takmörk fyrir hæfileikum þínum :)
Bið að heilsa Edinborg!
Valþór + Signý: Nei, þakka ykkur fyrir sidst! Djöfull var ógurlega gaman :) Aaaah dæs. Will we meet again...in...shall we say Paris? ;)
Anna Lára: Jámm! Bo Pedersen verður skilinn eftir í þetta sinn hehe. En nóg pláss í nýju íbúðinni fyrir gestakomur ;)
Sigrún Margrét: Þakka þér fyrir mín kæra :) Já, tók myndina af Hr. Hundi síðasta sumar þegar ég var úti að leika mér með einnota svart/hvíta myndavél :)
Bó: Less than a mooooooooooooooooooonth now!! ;D Wúh wúúúh. Úh, og þú verður fyrsti gesturinn í nýju íbúðinni. Helduraðasé!
Tinna: Takk fyrir það Tinna mín :) Vona að þið og Ponsa séuð öll súperhress *múúúúak*
:)
Post a Comment