Halló.
Og gleðilega páska allir. Vona að þið hafið það gott. Þar sem ég sat snemma í morgun og litaði á mér hárið, til að viðhalda þeirri útbreiddu blekkingu að ég sé náttúrulega ljóshærð, varð mér hugsað til liðinna páska. Mér fannst páskarnir alltaf voða skemmtilegir þegar ég var lítil. Eiginlega skemmtilegri en jólin. M&P földu alltaf eggin og svo varð maður að pína ofan í sig ristabrauð eða súrmjólk eða eitthvað áður en maður mátti byrja að gúffa kvikindið í sig. Sakna family+friends doldið verklega þessa dagana. En það er gaman að segja frá því að það borgaði sig loksins að vera stúrin á almannafæri og vera ekkert að reyna að vera myljandi hress ef maður er með heimþrá. Leyfa því bara að gossa út fyrir framan vini og samstarfsfélaga. Ruth, yfirmaður minn elskulegur á The Lot, kallaði mig inn á skrifstofuna um daginn. "Ík" hugsaði ég en þá vildi svo skemmtilega til að fundurinn var á persónulegu nótunum. Þá hafði hún tekið eftir því að ég var búin að vera eitthvað hálfdán undanfarið og skrifaði það, eins og rétt var, á þrá þá er kennd er við heim. Þannig að hún sagði mér að hún ætlaði bara að taka mig með sér heim til sín í staðinn. Ergo, á fimmtudaginn er ég að fara að vakna úber snemma og fara með Ruth til Norður-Írlands í þrjá daga. Þar mun ég meðal annars dandalast á bóndabænum sem þau eiga heima á og svo förum við á eitthvert massíft charity ball í Belfast á föstudagskvöldinu. Heppin?
Annars er það fleira i fréttum að ég er búin að vera nett pirripú á íbúðardeili mínum elskulegum undanfarnar vikur. Ekki nóg með að ég er orðin nokkuð viss um að hann noti tannburstann minn í leyfisleysi, þá lét hann mig vita með klukkutíma fyrirvara að "nokkrir" vinir hans ætluðu að koma frá Danmörku og fá að vera í eina, tvær nætur. Þeir eru fjórir og eru búnir að vera í 5 nætur. Og þeir hafa hátt og þeir tala dönsku. Og þegar ég þurfti nánast að fara í röð til að fara á míns eigins klósett einn morguninn var mér gróflega misboðið. En í byrjun sumars er jafnvel mögulegt að dálítil breyting verði á högum Jones þar sem ákveðið hefur verið í samráði við E að það verði jafnvel lagt út í samba, þ.e.a.s. skellt sér í sambúð. Það ætti nú að verða allt í lagi. Mjá.
Og bles.
Sunday, April 12, 2009
Subscribe to:
Post Comments (Atom)


5 vita betur:
Ertu búin að fá leifi frá foreldrum hans að hann fái að heimsækja þig? er hann orðinn nógu gamall til að fá að vera úti eftir háttartíma?
heyrðu já nú held ég að ég þurfi að skella mér yfir til þín og skoða málin aðeins. Þetta var kornið sem fyllti mælinn !!
Vona að írska bóndabæjarstemningin hafi hresst þig við ;-) Hvernig var annars?
Ujh .... *brosihringinn* :D
Osso bara knús.
Bó
Geir minn: Ég get kannski bara gefið þér ráð um hverng á að ná í sér yngri elskendur. Þá gæti máski eitthvað dregið til tíðinda milli þín og smáp******. Nokkuð sem ég veit þú hefur þráð í mörg ár. Og ekkert að þakka.
Signý: Jöööööööööss!
Eyrún Sif: Sjagga þér fyrir ;) Jú, mjög svo hressandi alveg. Smelli inn myndum einhversstaðar fljótlega.
Bó: *mmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmúak* Einn og hálfur mánuður?? :)
Post a Comment