Á þriðjudaginn síðastliðinn var degi Sánkti Patriks fagnað með rikk. Í Jonesbæ var um tvöfalt fagn að ræða þar sami dagur markaði þann áfanga að mér hefur tekist að láta ekki dömpa mér í 1 ½ ár. Fékk blóm og allt. Ég vil bara byrja á því að þakka mömmu og pabba fyrir og öllum þeim sem hafa stutt mig í...dujók. Rómansinn sveif yfir Edin þar sem ég hitti E og um það bil alla Íra í borginni á The Royal Oak þegar ég var búin að vinna. Þar gerðist ég helst til gáskafull í drukk og klessti næstum því á húsvegg þegar ég var að taka my signature hoppa-og-smella-saman-hælunum stökk á Chamber Street. Þaldénú. Fór svo heim og orti ástarljóð til kærastans míns. Sem betur fer drapst ég áður en ég gat skrifað það á vegginn hans á Facebook eins og ég hafði upphaflega ætlað mér. Það þarf kannski ekki að fjölyrða neitt um það að ég er mjög fegin að ég skuttlaði ekki áðurnefndum kveðskap á alnetið. Skemmtilegt.
Var að vinna í brúðkaupi í vinnunni um helgina. Það var lifandi sönnun þess að dópistar can live happily ever after. Þannig að ég get óhrædd haldið áfram að sprauta heróíni í augun á mér. En þetta var allt mjög tilfinningaþrungið. Brúðurinn tattúeraðri en góðu hófi gegnir og brúðguminn með um þið bil þær verstu tennur, or lack thereof, sem ég hef nokkurn tíman séð. En hann fór smá að gráta kallgreyið í ræðunni sinni til hennar og ég er ekki frá því að Jones hafi dulítið komist við milli þess sem ég þurrkaði glös og fyllti á kartöflusalatið á hlaðborðinu. Töff.
Í morgun var ég að labba út í búð og sparkaði í dúfu. Þetta þótti mér afar merkilegt þar sem ég veit ekki hversu oft ég hef næstum þvi sparkað í dúfu en aldrei virkilega náð að dúndra í þær því þær, jú, fljúga burt. En þetta var semsagt óvart samt og mér leið pínu illa útaf því. En hún jafnar sig vonandi greyið. Ljóta ljóta grey.
Annars er nú svosem ekki stórtíðindunum fyrir að fara hérna megin. Bara allt í góðu standi, vorið komið og Jones tekur á móti góðum gestum í Vesturportinu næstu helgi þegar Ms. Ármannsdóttir + betri helmingur mæta á svæðið. Hlakki hlakki til! :)
Segjum það í bili.
*dansi dans*
Og bles.
Monday, March 23, 2009
Subscribe to:
Post Comments (Atom)


4 vita betur:
Gott hjá þér bara að dúndra í kvikindið. Ekkert nema korrandi smitberar!
Jeeeeiiii.... Jones fréttatími :D
ahh... gott að heyra í þér.
Mynntu mig á að pota í þig við tækifæri á snjáldursskjóðunni (nýjasta nýyrðið).
Jónsi
Jeeeeeij :)
pot pot pot gaman gaman gaman
Post a Comment